Hugleiðingar

Stjórnlagaþing: Hmpf. GMG. LOL. Veit ekki hvernig þetta fer. Örugglega illa!

Íbúðarleit: Hmpf. GMG. LOL. Veit ekki hvernig þetta fer. Örugglega vel!

Knattspyrna: Eftir að hafa sett á stað sögu um að hann, W. Rooney, vildi fara frá Man. Utd. þá hefur umræðan um knattspyrnuheiminn aftur farið að snúast um knattspyrnuna sjálfa en ekki um framhjáhaldið hans. Ef hann spilar á móti Man. City og skorar þá gleymist allt endanlega og hann verður hetja í ákveðnum hluta Manchesterborgar og hjá öllum aðdáendum liðsins um allan heim. Þá hafa hann og umbinn (þó ekki skuldara) fullkomnað "Wag The Dog - plottið" sitt. 

Gareth Bale stóð sig frábærlega á móti Inter, lék sér hreinlega af þeim. Hann gerði allt en nokkrum dögum áður hafði miðlungsvarnarmaður leikið sér að G. Bale. Rafael hjá Man. Utd. Er G. Bale góður leikmaður? Já! Er hann heimsklassa leikmaður? Langt í frá!

Bébe. Hann verður rosalegur. Ferguson er ótrúlegur. 

Dexter. Rólegur Dexter. Dester vel gert! Dexterþúertmeðþetta!


Rooney og menntun

Af hverju vildi Rooney fara frá Man. Utd.?

Ég held persónulega að þetta mál sé flókin flétta til að bæta ímynd kappans í fjölmiðlum. Þetta hafi ekki snúist um það að strákurinn vildi fara frá liðinu sem hann elskaði því honum fannst metnaðurinn vera of lítill eða hann hafi viljað meiri pening, þó peningar spili alltaf stórt hlutverk í öllu. Líka hjá Rooney. Frekar er þetta tengt umfjöllun fjölmiðla af honum sjálfum. Rooney vildi betri umfjöllun í fjölmiðlum. Hann vildi að fjölskyldan hans fengi frið frá umfjöllun fjölmiðla um framhjáhöldin hans. Svik hans við knattspyrnulið er mun betri umfjöllun en svik hans við eiginkonuna sína og fjölskyldu. Eða vildi hann bara meiri pening? Eitt er þó víst, Rooney mun fá hærri laun fyrir að spila knattspyrnu, hann fékk fjölmiðla til þess að skrifa um eitthvað annað en stanslausu framhjáhöldin hans og hann fékk stuðningsmenn liðsins uppá móti sér. Stuðningsmenn liðsins eiga samt eftir að fyrirgefa kauða um leið og hann skorar nokkur mörk, sérstaklega ef hann skorar á móti Liverpool. Hver svo sem ástæðan var fyrir þessu óvænta útspili Rooney þá mun fjölskyldunni liða betur enda man enginn eftir framhjáhaldinu, í dag, nema kannski eiginkonan.

 

Menntun íslensku þjóðarinnar. Hún er flókin. Ég held að við höfum verið að einbeita okkur á röngum enda síðustu árin eins og svo oft áður. Við erum að einbeita okkur að því að komast í topp 100 háskóla heims þegar við ættum að einbeita okkur að vera með bestu grunnskóla heims eða svona topp 100. Gleyma þessum háskólum og gera unga fólkið okkar að gáfuðustu börnum heims, hvað svo sem það þýðir. Grunnskólinn er mun mikilvægari en háskólinn því ef grunnskólarnir okkar eru lélegir þá verða háskólarnir aldrei góðir. En ef grunnskólarnir okkar verða góðir eiga háskólarnir okkar auðveldrar með að komast í hóp þeirra bestu.


Augu sjómanna

Sumir eru með brún augu. Ég er með brún augu. Hvaðan koma þau? Af hverju er ég með brún augu? Nú móðir mín er með brún augu. Af hverju "komu" brún augu í ættina? Er það eins og Jón Kalman Stefánsson segir í bók sinni, "Himnaríki og Helvíti", á bls.14.

"Sum okkar eru með brún augu, hingað komu sjómenn frá fjarlægum stöðum og hafa gert í árhundruð því sjórinn er gullkista. Þeir koma frá Frakklandi, Spáni, margir þeirra með brún augu og sumir skilja augnlitinn eftir hjá einhverri konu, sigla burt, komast heim til sín eða drukkna."


Hunter-inn

Við vorum einhversstaðar nálægt Barstow við enda eyðimerkurinnar þegar eiturlyfin fóru að taka yfir. Ég man eftir að hafa sagt eitthvað á þessa leið “ég er eitthvað slappur, kannski að þú ættir að keyra.”


Vélar

"Vinsamlegast bíðið, sæki heimild.

 

Vinsamlegast veljið vöru.

 

Takk fyrir að velja Ölgerðina."

 

Vélar eru kurteisari en fólk, a.m.k. sjálfsalinn í Lögbergi. Líka þegar hann stelur af manni.


Fótbolti

Ég fyllist alltaf stolti þegar ég rekst á texta þar sem Ísland, íslenska eða eitthvað um landið okkar er til umfjöllunar hjá útlendingum og þá sérstaklega erlendum fjölmiðlum.

Ég held ég hafi þó náð nýjum hæðum/lægðum þegar ég hrópaði "nei íslenska" ,þó í hljóði, þegar ég las eftirfarandi bút úr grein á netsíðu New Yorker, hér er búturinn:

"The one that the rest of the world calls “football,” except when it’s called (for example) futbal, futball, fútbol, futebol, fotball, fótbolti, fußball, or (as in Finland) jalkapallo, which translates literally as “football.” That one."7

Greinarhöfundur veltir fyrir sér þeirri spurningu hvort Kanar hati Fótbolta. Góð grein. Ætlaði að segja ágætis grein en ég veit ekki alveg hvað það þýðir í núverandi máli.

Greinin:

http://www.newyorker.com/talk/comment/2010/07/12/100712taco_talk_hertzberg

 


Hvað er til ráða?

Tóbak, kaffi og tópas (xylitol).

Bob Dylan og Sendiherrann. Er Bob Dylan Sendiherrann?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband